föstudagur, febrúar 29, 2008

Græni stóllinn


Græni stóllinn
Originally uploaded by melong.

Þessi fékkst í Maddömmunum , hérna á Selfossi. Veit ekki hvort að hann er enn til en ástæðan fyrir því að ég keypti hann ekki var sú að Guðmundi féll hann ekki í geð.....

fimmtudagur, febrúar 28, 2008

Aftur snjóar !


roloskolo
Originally uploaded by melong.

Eins og það sé stórfrétt !!!
Það er víst vetur....
Mikið að gera , lítið bloggað.......

laugardagur, febrúar 23, 2008

Þorrablót í kvöld


Raki
Originally uploaded by melong.

Ég er ekki byrjuð að setja upp andlitið..... en sparifötin eru til reiðu og Guðmundur er að sækja miðana.

miðvikudagur, febrúar 20, 2008

Almyrkvi á tungli.


laluna
Originally uploaded by melong.

Nú styttist í almyrkva á tungli, en þann 21. febrúar verður tunglmyrkvi sem mun sjást um miðja nótt frá Íslandi.
Almyrkvinn verður á milli kl. 3:01 og 3:51 aðfararnótt fimmtudagsins, eða "mjög seint á miðvikudagskvöld". Tunglið byrjar að ganga inn í alskugga jarðar kl. 1:43 og hefst þá deildarmyrkvi. Smám saman breytist deildarmyrkvinn í almyrkva eins og sést á myndinni neðst á síðunni.
Almyrkvi á tungli getur verið mikið sjónarspil ef vel viðrar. Með hefðbundnum handsjónauka nýtur maður hans mun betur en með berum augum, en hann getur verið mjög tilkomumikill jafnvel þó maður hafi ekki sjónauka við hendina.
Við almyrkvann tekur tunglið á sig undarlegan roða. Litbrigðin geta verið undurfögur, og ásýnd mánans virðist breytast frá því að vera hringlaga flöt skífa á himninum yfir í þrívíða dimmrauða kúlu sem svífur á milli stjarnanna. Stjörnur, sem áður voru ósýnilegar vegna glýju frá tunglinu, koma í ljós og tindra umhverfis fylgihnött jarðar sem skartar sínu fegusta og svífur um himinfestinguna í allri sinni dýrð. Myndin hér fyrir ofan gefur vonandi hugmynd um hvað í vændum er.
Deildarmyrkvi hefst: 1:43
Almyrkvi hefst: 3:01
Miður myrkvi: 3:26
Almyrkva lýkur: 3:51
Deildarmyrkva lýkur: 5:09


Textinn er fenginn á íslenskum stjörnuskoðaravef.

fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Ég er glöð og ég er góð, Jón er kominn heim......


greinar
Originally uploaded by melong.

Guðmundur er kominn heim og ég stefni á það að fara að heiman...................

Stutt skrepp í Pokavog

Meira af snjó og sinu....


snjogluggi
Originally uploaded by melong.

mánudagur, febrúar 11, 2008

Hann á afmæli í dag....


One day older today ! Hann á afmæli í dag....
Originally uploaded by melong.

Guðmundur gerir ekki mikið úr afmælum en það geri ég hins vegar !
Hann fór upp í Þjórsárdal í morgun til að vera með skógarpúkum þar.

laugardagur, febrúar 09, 2008

Fyrir-framan-leikskólann


Fyrir-framan-leikskólann
Originally uploaded by melong.

Ég man ekki hvað leikskólinn heitir. Hann er í Borgarholtinu fyrir neðan Kópavogskirkju. Ég gæti svosem fundið þetta út á kopavogur.is.....

KÓPASTEINN. Þá er það á hreinu.
Ég var líka um tíma á öðrum leikskóla í austurbænum. En ég fór aldrei í 6 ára bekk en tvisvar sinnum í 7 ára bekk.

mánudagur, febrúar 04, 2008