föstudagur, nóvember 21, 2008

Geir Gengur Burt 2007.mov

Ég er æf að reiði. Dropinn sem fyllti mælinn gagnvart Geir Hrokari Haarde.

Báturinn ruggar...

Rock The Boat - Hues Corporation (HQ Audio)

þriðjudagur, nóvember 18, 2008

miðvikudagur, nóvember 05, 2008

Ég fékk þetta skeyti frá systurdóttur minni í gær. Hún samdi þetta frábæra ljóð !!!!

Punktur á hafi

Mér líður eins og punktur á hafinu,
ég fer með skipi.

Ég sé höfrungana synda
eins og vindurinn fýkur.

Ég heyri hundanna gelta,
hestanna hnegg og gæsanna kvak.

Ég finn vindinn umliggja mig þar sem ég stend
á skipinu,
ég skynja ótta gagnvart nýja landinu
og ég er kvíðin en spennt en er þó ekkert nema punktur
á hafinu sem flýtur með.



>Hæ allir ég var að búa þetta ljóð það átti að búa til ljóð fyrir morgun
>daginn í skólann og var að búa það til þegar mamma sá það og það leið
>yfir
>hana.(NOT) semsagt og seijjir mér að hringja í ömmu amma táraðist yfir
>þessu sem ég skil ekkert í og mamma og amma sögðu að ég ætti að eiga
>þetta eða senda í tölvupósti.
>
>þetta ljóð áttum við að búa til um fólkið sem er að fara úr Noregi til
>Íslands(sem er BESTA LAND Í HEIMI!!!!!!)og........já .Vonandi líkar þér
>frænka , amma og þér afi. Bæjj og takk að skoða tölvupóstinn ykkar bæjj KV.
>Katrín B. Hjálmarsd.

Barack Obama Speech at 2004 DNC Convention

Ég vona svo innilega að þessi maður vinni kosningarnar !!!!

sunnudagur, nóvember 02, 2008