sunnudagur, janúar 13, 2008

Ef ég ætti arinn myndi ég kveikja upp í honum í dag.


fire
Originally uploaded by melong.

Guðmundur er á Núpi. Hann er enn í jólafríi. Það kemur sér vel fyrir hann eins og á stendur.
Hann fór í magaspeglun í byrjun vikunnar því að barkabólga sem hann fékk í haust var þrálát og lagaðist ekki nógu vel.
Í ljós kom að um er að ræða eftirfarandi; þindarslit, bakteríur í maga og bakflæði. Hvorki meira né minna.
Ég las mér til um bakflæði í morgun og komst að því að barkarbólga er fylgifiskur hennar þannig að þetta virðist vera rökrétt afleiðing af henni.

Nú loksins í dag líður honum eitthvað betur svo að ég er dauðfegin að heyra það. Ég er frekar upptekin núna.

Ég er að vinna í námsmati því að ég er að fá nýja nemendur á morgun og þarf að ganga frá eftir haustönnina.
Einnig er ég að vinna í Photoshop vegna verkefnis sem ég er að vinna fyrir Samband Sunnlenskra kvenna sem mun verða áttrætt á þessu ári.

miðvikudagur, janúar 09, 2008

Snjóföl


Rau-holt_Selfossi
Originally uploaded by melong.

ekki ný mynd heldur "gömul".
allt í status quoi hér í bæ....

Snjóföl


Rau-holt_Selfossi
Originally uploaded by melong.

ekki ný mynd heldur "gömul".
allt í status quoi hér í bæ....

laugardagur, janúar 05, 2008

Hr. Haarde


Prime minister
Originally uploaded by melong.

Þessi maður má gjarnan gera sitt til að koma í veg fyrir að ákveðinn maður bjóði sig fram til forseta Íslands.
Maður sem þjóðin hefur áður hafnað á ekkert erindi í að eyða peningum okkar til einskins. Hér á ég við hr. Á. Magnusson.
Þekki manninn ekkert en KRÆST, ekki gera okkur það aftur að bjóða þig fram......

Jólailmur


more-humidity
Originally uploaded by melong.

Jólailmurinn fyllir húsið því að ég hef verið með hangikjet í pottinum í allt kvöld... Ég skipti mjög oft um vatn og suðan er að koma upp aftur og aftur.

miðvikudagur, janúar 02, 2008

GLEÐILEGT NÝTT ÁR


kirkja.á.ská
Originally uploaded by melong.

Og kærar þakkir fyrir innlitin á gamla árinu !

sunnudagur, desember 30, 2007

Þetta líður hjá


skyspot
Originally uploaded by melong.

Myndin er tekin á öðrum í jólum.
Það sem maður verður latur í rigningu og roki !

föstudagur, desember 28, 2007

*&


*&
Originally uploaded by melong.

Hér er önnur mynd af fröken fix. Ein af þeim sem að eru í mynd gærdagsins. Ég keypti hvítt og grænt meik í Leeds í sumar. Katrín málaði mig með græna meikinu og ég varð all svakaleg. Hef ekki þorað að seta þær myndir á netið enn.... ég er eins og blanda af birnu, dýrunum í Hálsaskógi og Roald Dahl sögu.

þriðjudagur, desember 25, 2007

Dásamleg jól


joyeux_noel2007
Originally uploaded by melong.

Snjór og allt !!! lnnilega falleg snjókoma og þvílík dýrð á að líta.
Kvöldið í gær heppnaðist afar vel, mjög notalegt og yndislegt. Lukka fékk þrjá pakka. Alla ætilega svo að hún er glöð.

mánudagur, desember 24, 2007

sunnudagur, desember 23, 2007

Jólabaksturinn í ár


Christmas Cookie Collage
Originally uploaded by Mad Baker.

Ég hef ekki bakað fyrir jól í mörg ár og sakna þess ekki.
Ég rakst á þessa mynd áðan og váá ekkert smáræðis flottheit. Ekki amalegt að geta fengið svona myndir lánaðar á netinu.

Thanks to MadBaker

laugardagur, desember 22, 2007

Jólin nálgast ótt og títt


Firestone Presents Your Favorite Christmas Music, Volume 6
Originally uploaded by Monkey River Town.

Gjafirnar frá. Öndin í ísskápnum.
Jólatréð í garðinum.
Þetta kemur allt í rólegheitum......

föstudagur, desember 21, 2007

Jólasveinn


jólasveinn
Originally uploaded by melong.

Þessi pakkaði inn fullt af gjöfum fyrir mig í dag....eða þannig.

Jólakort


Jólakort
Originally uploaded by melong.

Mér finnst frábært að fá jólakort, mér finnst gaman að búa til jólakort.
Ég vil gjarnan senda jólakort. En...
Ég þjáist af jólakortakvíða....... ég lét mig hafa það í gær að skrifa og senda, auðvitað með hjálp Guðmundar. En ég er uppspennt og stressuð af því að jólin eru bara handan við helgina ...

Ég lifi þetta af og er svo hæstánægð með að hafa sent frá mér kort, þó svo að sum komi seint til viðtakenda.

þriðjudagur, desember 18, 2007

Engin tré, ekkert lkea !


Nánari upplýsingar um sniðuga herferð má skoða hér.

sunnudagur, desember 16, 2007

Hvíti stólinn


Hvíti stólinn
Originally uploaded by melong.

Mig langar í þennan.
Guðmundi finnst hann ljótur......
Mér finnst hann æðislegur en myndi aldrei geta haft setuna áfrma rauða.....

Jósefína kaupkona í Maddömmunum.


Jósefína kaupkona í Maddömmunum.
Originally uploaded by melong.

Uppáhalds verslunin mín hér á Selfossi, fyrir utan Bókakaffið sem kemur næst.

María guðsmóðir í Maddömmunum.


María guðsmóðir í Maddömmunum.
Originally uploaded by melong.

laugardagur, desember 15, 2007

Tíminn líður og nú er orðið dimmt...


IMG_0405
Originally uploaded by melong.

Kominn tími til að kveikja á einu kerti eða svo ?

þriðjudagur, desember 11, 2007

sunnudagur, desember 09, 2007

Herra og frú Heilsa.


Mor og far
Originally uploaded by melong.

Ég tók þessa mynd í gær af foreldrum mínum.
Þau komu endurnærð eftir tveggja vikna dvöl á heilsuhóteli í Póllandi.
Pabbi gekk um allt Pólland ... held ég , hann var svo duglegur í göngunum og mamma er kaffibrún.. ! Samt fór hún bara í 10 mínútur... þrisvar sinnum.
Fanney huggaði til og var búin að kveikja á kertum og gera huggulegt, Katrín var búin að útbúa "velkomini heim" skilti svo að heimkoman varð afar ánægjuleg fyrir þau og öll fjölskyldan var mætt að taka á móti þeim.
Lukka líka.
Gísli fór beint upp í fangið á pabba og var alveg yfir sig ánægður með að vera búinn að fá hann heim.....

fimmtudagur, desember 06, 2007

Krot úr skissubókinni


Baðstofuhringur3
Originally uploaded by melong.

Ég vona að einhverjir hafa gefið sér tíma til að hlusta á Philippe Starck. Ég á sjálf eftir að hlusta út á enda.

Í dag er nokkuð hlýtt og kyrrt veður í Selfoss Metropolis.
Ég er alger grasekkja því ekki einu sinni Lukka er heima. Guðmundur er að vinna í Fljótshlíðinni og hefur því haft næturstað á Núpi þessa viku. Ég ætla að kíkja á hann á morgun en í gær fór ég og heimsótti fjölskylduna í Skólagerðinu. Það var indælt. Ég las 2 Disney bækur fyrir Gísla og gerði jólakort með Katrínu. Mjög notalegt og nauðsynlegt þegar maður er svona mikið einn heima.

Ég fer reyndar aftur í Kópavoginn á laugardaginn til að taka á móti hertogahjónunum af K91. Þau koma seinnipartinn úr tveggja vikna Póllandsreisu.

miðvikudagur, desember 05, 2007

Philippe Starck: Why design?

Spurning hvort að þetta sé einungis fyrir frönskumælandi ? Held ekki en hann er hrikalega skemmtilegur !!!!
Þekktasti hönnuður okkar daga.

Hin hliðin


jolastjarna
Originally uploaded by melong.

Jól og jól og jól.
Maður kemst snemma í jólaskap þegar maður kennir ungum börnum.
" Ég er svo spenntur, ég hlakka svo til, ég er alveg að drepast."
Stundum hefur þessi stemning breyst í jólaþreytu fyrir jól en það þarf ekki að gerast. Ég ætla að stilla hausinn inn á það að vera jákvæð gagnvart jólunum.
Þess vegna ákvað ég að heimsækja ekki verslanamiðstöðvar fyrir jólin og að versla frekar í heimabyggð, enda það betra fyrir andlega heilsu mína.

þriðjudagur, desember 04, 2007

Legsteinninn


legsteinninn
Originally uploaded by melong.

Systkinin, mínus Einar og Sigrún, settu upp þennan fallega legstein á leiði foreldra sinna síðasta laugardag.
Það sést glitta í Ásólfsskálakirkju á bak við steininn.
Einnig var settur upp ljósakross á leiðinu svo að jólin eru klár þarna í kirkjugarðinum.

sunnudagur, desember 02, 2007

Arnór lítil


Arnór lítil
Originally uploaded by Arnór Bogason.

Ég var ekki heima í gær svo að ég gat ekki bloggað um afmæli dagsins...
Maggi, föðurbróðir og Rúna hans áttu afmæli en þar sem að Arnór frændi varð 25 í gær þá er það hann sem hefur vinninginn og er á mynd dagsins. Þarna er hann um 4 ára aldurinn. Hann var mjög skemmtilegur þá og er það enn , sem betur fer.....
Ég passaði hann stundum en núna þá hjálpar hann mér mikið og fræðir mig um ýmislegt tengt mökkum...

Til hamingju með daginn alle sammen....

miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Bloggad a iPod touch !!


Abundance of talented people on flickr !
Originally uploaded by melong.

thessar myndir edu Fra odrum a flickr. Thad we komin thradlaust net I skolann. Jaeja, Berra ad skrifa a venjulegt lyklabord en thefts we salt otrulega gott lyklabord tho thad we alltaf ad reyna ad fa log tip ad skrifa ensk ord. .

sunnudagur, nóvember 25, 2007

Feiti Davíð



Það vantar bara feitu Venus,,, ég get setið fyrir....

miðvikudagur, nóvember 21, 2007

Moebius, fagurfræðileg stærðfræði.

Skjálftakaffi í stað prjónakaffis


blurryabstr
Originally uploaded by melong.

Eitt kvöld í mánuði er prjónakaffi í Bókakaffinu á Austurveginum.
Í kvöld var þar Bergór Pálson og kynnti fyrir okkur fína siði og svo hristumst við og skulfum þar á eftir.

Ég hef aldrei upplifað áður svona mikið af jarðskjálftum í einu. Stutt síðan að síðasti skjálfti reið yfir.
"Shaken not stirred" eins og vinkona mín orðaði það svo vel í smáskilaboði í kvöld.....

mánudagur, nóvember 19, 2007

Gagnlegur leikur


Ég hvet alla til að prófa enskukunnáttuna og gefa af sér í leiðinni. Þetta verður alveg ávanabindandi.
smellið hér

sunnudagur, nóvember 18, 2007

Steypa með eftirsóknarverðum eiginleikum.

Ég var að skoða frábæra síður sem heitir inhabitat.com.

Þar rakst ég á alveg yndislega spennandi nýjungar. Ég er svo hrifin af alls konar efnum , það er líka alltaf eitthvað nýtt að gerast. Ég byrjaði á að skoða múrsteina sem eru gerðir úr úrgangi nær eingöngu og á að vera sterkara en steypa. Það eru bretar sem eru að framleiða þá. Svo var það þessi frábæra nýjung, GENGSÆ STEYPA !



Annað sem að mér þótti markvert var steypan sem mætti jafnvel kalla lifandi steypu þar sem að í henni getur vaxið gróður, samt er hún vatnsheld !




"Organic concrete" er þetta kallað, eða lífræn steypa á íslensku.
Ótrúlega spennandi möguleikar sem í henni eru fólgnir. Ég er til dæmis mjög frústreruð yfir öllum gráu og köldu háhýsunum sem risið hafa í Reykjavík á undanförnum árum. Þar er ekkert grænt að sjá, algerlega líflaust, óspennandi og niðurdrepandi. Vonandi kveikja Íslendingar á þessum möguleikum og það fyrr en seinna !!!

Kertatími


kertiglugg
Originally uploaded by melong.

Það er kominn kertatími en ég hef bara ekki kveikt enn á eldspýtunni hvað það varðar....
Hér er kalt en þó mun skárra en í gær þar sem að það er logn.
Guðmundur og Lukka eru heima.

sunnudagur, nóvember 11, 2007

Sunnudagur til sælu er


The yellow eye
Originally uploaded by melong.

Hvíldardagurinn er vonandi sem flestum rólegur og þægilegur.
Hann er það hjá mér , svo sannarlega.
Ég var að fylgja foreldrum mínum til dyra rétt í þessu. Maður reynir að halda fast í það litla vit sem að maður hefur.

föstudagur, nóvember 09, 2007

Föstudagspúkinn


pitch a fit...
Originally uploaded by snailbooty.

Þessi passar við daginn í dag.
Strákarnir sem ég kenni á föstudögum eru hjá mér í síðustu tímum dagsins og það er verulega erfitt að einbeita sér og að halda sér við vinnu................................

mánudagur, nóvember 05, 2007

Sjónvarp


vedurtextavarp
Originally uploaded by melong.

Í gær ákvað ég að sleppa sjónvarpsglápi þessa vikuna. Í að minnsta fram að helgi. Þess í stað ætla ég að vera í bílskúrnum að vinna og eða eyða meiri tíma í eldhúsinu.
Sjónvarpið dregur úr mér framkvæmdamáttinn og nú vantar mig tíma svo að ég sá það í hendingu að þetta væri auðveldasta leiðin til að auka hann.

Svo er best að auglýsa svona ákvörðun opinberlega á blogginu svo að maður haldi sig við efnið...........

föstudagur, nóvember 02, 2007

Í Pokavogi

Afmælissúpan er komin af stað og enginn veit hvernig útkoman verður þar sem að kokkurinn er ekki vanur að fara eftir uppskriftum.....
Lukka er í smölun með Guðmundi.....

Einarlong


Einarlong
Originally uploaded by solhelga.

"hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann pabbi hann á afmæli í dag "

TIL H AMINGJU MEÐ DAGINN

Hann verður að heiman í dag en býður einhverju fólkí í súpu á morgun.

miðvikudagur, október 31, 2007

Fundadagur


Saragifs
Originally uploaded by melong.

Miðvikudagurinn er ágætur. Ég "lifði af" tvo fundi.
Svalt veður.
Nóatún lokað vegna vörutalningar ....
GR farinn að sofa.

Gok Wan sem sér um þættina sem kenna konum að vera ánægðar með sig, er alger dýrðlingur. Dýrðlingur kvenna með lélega sjálfsímynd ?

þriðjudagur, október 30, 2007

Eldri borgarar rokka feitt


Saragifs
Originally uploaded by melong.

Þeir eru afar góðir til að kenna íslensku, myndi ég halda.

Útlendingar þurfa fjölbreytt úrval kennara, bara eins og allir aðrir !

sunnudagur, október 28, 2007

Katrín og Gísli . . . .


Katrín og Gísli
Originally uploaded by melong.

...voru hjá okkur Gudmundi í sveitinni um helgina.
Thau komu med mor og far , solly og einsa, og thegar thau voru komin austur i gær vildu thau bædi gista.

Vantar islenska stafi hér hjá Fanneyju, ed og thonn er hvergi ad sjá.

Jæja ég er í menningarreisu í Pokavogi......fer aftur a morgun.