missloose-marbles
Originally uploaded by melong.
Er ekki kominn tími á smá tjáningu ?
Þessi skrítna á myndinni varð til fyrir rúmlega tíu árum síðan. Hún er enn á kreiki en lætur samt lítið á sér bera.
Er ekki kominn tími á smá tjáningu ?
Þessi skrítna á myndinni varð til fyrir rúmlega tíu árum síðan. Hún er enn á kreiki en lætur samt lítið á sér bera.
Rakst á þetta skondna myndband þegar ég var að leita að eldgosum til að sýna nemendum.
Ungi pilturinn til vinstri er Einar mágur minn. Hinir tveir heita Jói og Sigurjón. Þekki þá ekki.
Ef það væri sól núna þá væri hitametið í hættu því að það er alveg ótrúlega heitt núna. Ég er samt mjög ánægð með þessa hlýju.
Þetta er óopinberar fréttir. Ég hef ekki þurft að taka niður sýninguna svo ég læt það ganga að það verði opið hjá okkur um helgina. Látið það ganga !
Myndin sýnir systurson minn, hann Gísla, lyfta alveg gríðarlega þungum járnkarli. Sá liggur ekki á liði sínu við að hjálpa til og í þetta skipti sló hann út heila fjóra nagla fyrir okkur með sínum eigin hamri.
Veðrið er gott , það er gott....
Dásamlegt veður undir Eyjafjöllum í dag. Sólin skín þó með örlítlum vindi. Það kemur ekki að sök.
Katrín og Gísli eru hjá Ástu að hjálpa henni í garðinum. Ég er afar upptekin við að gera ekki neitt. Sýningin er opin og ég ætti að vera að rykluga.......
Það hefur verið gott veður í dag og á köflum afar hlýtt.
Umferðin er nokkuð mikil eða var það þegar við Guðmundur fórum að laga annað skiltið er fauk í nýliðnu roki.
Ég sé það betur núna að öll skilti eru í raun of lítil.
Til að ná athygli fólks þá þarf eitthvað stórt og áberandi.
Heilir tveir gestir í dag. Töluvert fleiri í gær samt. Þetta er misjafnt og von á hinum og þessum um helgina.
Ég er afar skúffuð með Fréttablaðið. Þar birtist lítil klausa; "Kvennalist til góðgerða". KVENNALIST.
Æi, hafið þið einhvern tíman lesið um KARLALIST ?
Konur gera eitthvað saman þá er það kvenna þetta og hitt...
.................................
.................................
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Katrín, hún er tíu ára í dag !!!
Ég kemst ekki í afmælisveisluna en fæ hana hingað fljótlega eftir helgi og þá getum við fagnað saman !!!!!
Oddvitinn sem um ræðir var afi eða langafi Guðmundar.
Ég hef verið að stelast til að skanna meðfram sýningarundirbúningi...
Bið alla um að auglýsa sýninguna mína !!!!
Myndlistarsýning á Núpi.
28. júní til 13. júli.
Allir velkomnir !
Ég giska á að þessi sé tekin 1972. Hún er tekin á Vopnafirði. Þarna eru frá vinstri Haukur Ágústsson, Hilda Torfadóttir og ungfrú Long.
Ég fékk aðstoð við tölvuna og get núna notað fjölnotatæki mitt og ég varð hreinlega að skanna eina mynd. Þessi varð fyrir valinu.
Annars er beðið eftir mér á Núpi.
Ég kom á Selfoss til að vinna tölvuvinnu og til að fá sérfræðiþjónustu.
Heima eru faðir minn og systurdóttir og á leiðinni þangað eru allir hinir nema mágur minn. Ég verð svo síðust.
Betra seint en aldrei.......
All nokkrir hafa haft samband til að athuga með okkur eftir skjálftann. Takk fyrir það.
Ég get núna sagt að við vorum alveg einstaklega heppin og að tjón hjá okkur er afar smávægilegt miðað við hjá mörgum.
Neðar hér í götunni losnuðu ofnar frá veggjum.
Smávægilegt bara , ég þakka Guði fyrir hvað við sluppum vel.
Svo á ég frábæra foreldra sem komu hér í dag og hjálpuðu mér að ganga frá. Pabbi setti bókaskápinn aftur saman. Svo var ekki verra að systursonur minn var með og hann lagði sitt til málanna. Svo sannarlega duglegur og skemmtilegur piltur.
Ég held að ég þoli ekki fleiri skjálfta takk fyrir !!!
Sjúkrabílarnir eru á fullu og mér brá töluvert þegar ég fór út í garð áðan.
því að nokkuð af hellm við húsið hafa sigið töluvert og hleðslur hjá okkur hrunið. Þá áttaði ég mig betur á kraftinum sem hér var á ferð og að þetta er ...nú hristist aftur....
arg mér finnst svo óþægilegir þessir litlu sem að koma á eftir....
Fleiri myndir seinna.
Ég horfði á tveggja tonna Landrover hristast til og frá og flaggstöng sveiflast eins og tannþráð.
Ég hélt mér fast í eldhúsbekkinn þar sem að ég stóð. Á meðan datt eitt og annað niður á gólf og brotnaði...
Maður er enn svolítið "hristur".... Ég á eftir að fara í bílskúrinn og taka myndir þar en ég er búin að kanna ástandið og þar þarf að taka til hendinni.
Töluvert hefur brotnað en samt ekki nema brot af því leirtaui sem til er á heimilinu.
Ég þarf að hvíla mig.......
Mér þeykir við hæfi að minna á ullarsokkana sem að héldu verkafólki hita.
Ekki auðvelt að berjast kaldur.