sunnudagur, desember 30, 2007

Þetta líður hjá


skyspot
Originally uploaded by melong.

Myndin er tekin á öðrum í jólum.
Það sem maður verður latur í rigningu og roki !

föstudagur, desember 28, 2007

*&


*&
Originally uploaded by melong.

Hér er önnur mynd af fröken fix. Ein af þeim sem að eru í mynd gærdagsins. Ég keypti hvítt og grænt meik í Leeds í sumar. Katrín málaði mig með græna meikinu og ég varð all svakaleg. Hef ekki þorað að seta þær myndir á netið enn.... ég er eins og blanda af birnu, dýrunum í Hálsaskógi og Roald Dahl sögu.

þriðjudagur, desember 25, 2007

Dásamleg jól


joyeux_noel2007
Originally uploaded by melong.

Snjór og allt !!! lnnilega falleg snjókoma og þvílík dýrð á að líta.
Kvöldið í gær heppnaðist afar vel, mjög notalegt og yndislegt. Lukka fékk þrjá pakka. Alla ætilega svo að hún er glöð.

mánudagur, desember 24, 2007

sunnudagur, desember 23, 2007

Jólabaksturinn í ár


Christmas Cookie Collage
Originally uploaded by Mad Baker.

Ég hef ekki bakað fyrir jól í mörg ár og sakna þess ekki.
Ég rakst á þessa mynd áðan og váá ekkert smáræðis flottheit. Ekki amalegt að geta fengið svona myndir lánaðar á netinu.

Thanks to MadBaker

laugardagur, desember 22, 2007

Jólin nálgast ótt og títt


Firestone Presents Your Favorite Christmas Music, Volume 6
Originally uploaded by Monkey River Town.

Gjafirnar frá. Öndin í ísskápnum.
Jólatréð í garðinum.
Þetta kemur allt í rólegheitum......

föstudagur, desember 21, 2007

Jólasveinn


jólasveinn
Originally uploaded by melong.

Þessi pakkaði inn fullt af gjöfum fyrir mig í dag....eða þannig.

Jólakort


Jólakort
Originally uploaded by melong.

Mér finnst frábært að fá jólakort, mér finnst gaman að búa til jólakort.
Ég vil gjarnan senda jólakort. En...
Ég þjáist af jólakortakvíða....... ég lét mig hafa það í gær að skrifa og senda, auðvitað með hjálp Guðmundar. En ég er uppspennt og stressuð af því að jólin eru bara handan við helgina ...

Ég lifi þetta af og er svo hæstánægð með að hafa sent frá mér kort, þó svo að sum komi seint til viðtakenda.

þriðjudagur, desember 18, 2007

Engin tré, ekkert lkea !


Nánari upplýsingar um sniðuga herferð má skoða hér.

sunnudagur, desember 16, 2007

Hvíti stólinn


Hvíti stólinn
Originally uploaded by melong.

Mig langar í þennan.
Guðmundi finnst hann ljótur......
Mér finnst hann æðislegur en myndi aldrei geta haft setuna áfrma rauða.....

Jósefína kaupkona í Maddömmunum.


Jósefína kaupkona í Maddömmunum.
Originally uploaded by melong.

Uppáhalds verslunin mín hér á Selfossi, fyrir utan Bókakaffið sem kemur næst.

María guðsmóðir í Maddömmunum.


María guðsmóðir í Maddömmunum.
Originally uploaded by melong.

laugardagur, desember 15, 2007

Tíminn líður og nú er orðið dimmt...


IMG_0405
Originally uploaded by melong.

Kominn tími til að kveikja á einu kerti eða svo ?