fimmtudagur, apríl 20, 2006

Sumar

Nú er sumar, gleðjist gumar,
gaman er í dag;
brosir veröld víða,
veðurlagsins blíða
eykur yndishag.

Látum spretta spori létta,
spræka fáka nú;
eftir sitji engi,
örvar víf og drengi
sumarskemmtun sú.

Tíminn líður, tíminn býður
sælan sólskinsdag.
Yndi er úti á grundum,
yndi, heim þá skundum,
seint um sólarlag.

Steingrímur Thorsteinsson

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

GLedilegt sumar!!

Mikid hefur hann Steingrímur verið í góðu skapi þegar hann orti þetta!!

Trallalalaaal ... sumarskemmtun sú.....

Fanney sys