sunnudagur, október 29, 2006

Gok Wan


Gok Wan
Originally uploaded by Rebekah Roy Fashion Stylist.
Ég var áðan að horfa á þáttinn "How to look good naked.".
Hann er mjög jákvæður fyrir líkamsimynd kvenna sem virðist vera brengluð hjá miklum meirihluta okkar. Þessi Gok er að sýna konum að þær séu flottar og að vera ánægðar með sig og gera gott úr því sem að maður hefur. Maður breytist nú ekki á einum degi þrátt fyrir að maður vilji eða ætli það. Jæja, það er í það minnsta jákvætt að það skuli vera eitthvað annað á skjánum en "the swan", sem að mér finnst nánast ógeðslegur þáttur.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já fyrst það þurfti að vera gera líkamsímyndarþátt á annað borð var þetta góður flötur!!
Sys