mánudagur, nóvember 05, 2007

Sjónvarp


vedurtextavarp
Originally uploaded by melong.

Í gær ákvað ég að sleppa sjónvarpsglápi þessa vikuna. Í að minnsta fram að helgi. Þess í stað ætla ég að vera í bílskúrnum að vinna og eða eyða meiri tíma í eldhúsinu.
Sjónvarpið dregur úr mér framkvæmdamáttinn og nú vantar mig tíma svo að ég sá það í hendingu að þetta væri auðveldasta leiðin til að auka hann.

Svo er best að auglýsa svona ákvörðun opinberlega á blogginu svo að maður haldi sig við efnið...........

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta sama var ég einmitt að hugsa þegar ég bar út Moggann fyrir MFG frænda minn hér austur Engjaveginn, var auðvitað að nálgast þitt áhrifasvæði sem hugsanir þínar bylgjast yfir. Góðar stundir segir Heiðmari