laugardagur, maí 31, 2008

Laugardagur


ln the bathroom
Originally uploaded by melong.

All nokkrir hafa haft samband til að athuga með okkur eftir skjálftann. Takk fyrir það.

Ég get núna sagt að við vorum alveg einstaklega heppin og að tjón hjá okkur er afar smávægilegt miðað við hjá mörgum.

Neðar hér í götunni losnuðu ofnar frá veggjum.

Smávægilegt bara , ég þakka Guði fyrir hvað við sluppum vel.

Svo á ég frábæra foreldra sem komu hér í dag og hjálpuðu mér að ganga frá. Pabbi setti bókaskápinn aftur saman. Svo var ekki verra að systursonur minn var með og hann lagði sitt til málanna. Svo sannarlega duglegur og skemmtilegur piltur.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra að þið sluppuð vel meðað við aðstæður. Þetta er ferlega sjokkerandi og skrýtið hvað náttúruöflin geta verið rosaleg.

Knús
Ragnheiður frænka