mánudagur, janúar 01, 2007

)))) 2007 (((((



Það er dásamlegt veður hér á fyrsta degi ársins. Ég ætla út að taka myndir um leið og bloggið er búið. Þegar við komum heim í nótt var allt hvítt hér, svona frosthvítt. Eitthvað smá hefur snjóað en aðallega var þetta frost.

Sprengingarnar í Pokavogi voru yfirgengilegar og það var sem að aldrei þeim ætlaði að linna. Lukka stóð sig með eindæmum vel. Hún hélt sig nálægt okkur og vældi ekkert. En ég held að hún hafi verið fegin þegar hún komst heim.

Engin ummæli: